Hönnuðir Uppsteyt
Uppsteyt er hannað af Jóni Snorra Sigurðssyni og Berglindi Snorra. Þau búa yfir ríkri sköpunargáfu og einkennist samstarf þeirra einna helst af stöðugri þróun nýrra hugmynda. Snorri er þekktur listamaður en Berglind er ungur og ögrandi hönnuður. Þau hafa unnið saman til fjölda ára og mynda frumlegt og kraftmikið hönnunarteymi.
Jón Snorri Sigurðsson hóf nám í gull- og silfursmíði árið 1966 hjá Jens ehf, einu elsta og virtasta gullsmíðaverkstæði á Íslandi, þar sem hann starfar nú sem yfirmaður hönnunardeildar og gullsmíðameistari.
Árið 1998 stofnaði Snorri Smak ehf. í samstarfi við hönnuði á borð við Michael Young. Smak er hönnunarstúdíó sem sérhæfir sig í að vinna með alþjóðlegum hönnuðum að smíði skartgripa og nytjahluta.
Snorri hefur haldið einkasýningar á Íslandi og í höfuðstöðvum EFTA í Brussel. Hann hefur einnig tekið þátt í fjölda sýninga erlendis. Alþingi og ráðuneyti hafa gefið fjölmörgum þjóðhöfðingjum og stofnunum um allan heim skartgripi og skúlptúra sem hann hefur smíðað.
Snorri hefur fengið ýmsar viðurkenningar á ferlinum en hann var meðal annars tilnefndur til menningarverðlauna DV árið 1996 fyrir hönnun og smíði verðlaunagripa sem veittir voru á Heimsmeistaramótinu í handbolta árið 1995.
Berglind Snorra útskrifaðist árið 2003 úr gull- og silfursmíði. Hún starfar nú hjá Jens ehf. sem gullsmiður og hönnuður.
Árið 2004 hóf Berglind nám við Sheffield Hallam University og útskrifaðist þaðan árið 2007 með B.A. (Honours) gráðu í húsgagna- og vöruhönnun.
Árið 2006 dvaldi hún í Prag og stundaði nám við Academy of Arts and Design Institution. Sama ár fékk Berglind viðurkenningu fyrir hönnun á ljósi í hönnunarsamkeppni Orkuveitu Reykjavíkur.
Árið 2007 starfaði Berglind í London hjá Established & Sons sem er leiðandi alþjóðlegt hönnunarfyrirtæki. Hönnun hennar þykir kraftmikil og djörf en formin eru sterk og nútímaleg. Í dag er hún einn af mest áberandi hönnuðum Jens ehf. og Uppsteyt.
Frekari upplýsingar www.berglindsnorra.is
HRÁEFNI
Uppsteyt skartgripalínan er smíðuð úr sterlingsilfri með rhodiumhúð. Rhodium er verðmætasti eðalmálmur sem vitað er um. Rhodiumhúð er oft kölluð hvítagullshúð vegna þess að hvítagullsskartgripir eru ávallt húðaðir með rhodiumhúð.
UPPSTEYT Í MÍNA VERSLUN
Viltu Uppsteyt í verslunina þína? Hafðu samband við okkur, uppsteyt@uppsteyt.is
SAMFÉLAGSMIÐLAR